Hringferð 2026

Taktu þátt í umræðunni

Rjúfum vítahringinn

Samtök atvinnulífsins fara í hringferð um landið undir yfirskriftinni „Rjúfum vítahringinn“.

Formaður SA, Jón Ólafur Halldórsson, og framkvæmdastjóri samtakanna, Bjarni Benediktsson, bjóða til morgunverðarfunda þar sem rætt verður um stöðu atvinnulífsins og þær aðgerðir sem þarf til að ná aftur stöðugleika í efnahagslífinu.

Með hringferðinni vill SA draga fram hvernig hægt er að styrkja samkeppnishæfni, bæta rekstrarskilyrði og skapa grundvöll fyrir aukin lífsgæði um allt land. Á fundunum verður lögð áhersla á opna umræðu um áskoranir og tækifæri á hverjum stað.

Hringferðin er liður í því að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvað þarf til að rjúfa vítahring óstöðugleika og skapa sterkari grunn fyrir íslenskt atvinnulíf.

Við verðum um allt land

Dagsetningar

26. maí - Selfoss
Skráning

27. maí - Vestmannaeyjar
Skráning

3. júní - Egilsstaðir
Skráning

4. júní - Akureyri
Skráning

5. júní - Akranes
Skráning

10. júní - Reykjavík
Skráning

11. júní - Ísafjörður
Skráning

12. júní - Grindavík
Skráning