„Ef við höfum ekki fyrirmyndir til að spegla okkur í þá getum við ekki séð okkur verða það.“

„Ef við höfum ekki fyrirmyndir til að spegla okkur í þá getum við ekki séð okkur verða það.“

María í Parity

„Við speglum okkur oftar í öðru fólki, og ef við höfum ekki fyrirmyndir til að spegla okkur í þá getum við ekki séð okkur verða það. Þannig að ég vil einmitt bara sýna það að Parity er fyrirtæki sem margir geta speglað sig í.“

Tölvuleikjaframleiðslufyrirtækið Parity var stofnað árið 2017 af Maríu Guðmundsdóttur. María hefur mikla reynslu í framleiðslu tölvuleikja, og stofnaði fyrirtækið með það að markmiði að auka fjölbreytni tölvuleikja á markaði sem og fjölbreytileika þess fólk sem kemur að gerð þeirra. Parity framleiðir tölvuleiki með áherslu á sterka söguþræði, innblásna af íslenskri náttúru og sagnahefð.

----

Íslensk fyrirtæki eru jafn ólík og þau eru mörg, áskoranirnar mismunandi og enginn vinnudagur eins. Þessu viljum við fagna með því að segja sögur af alls konar fólki í rekstri og þeim ótal viðfangsefnum sem það fæst við í daglegu amstri. Litríkt og blómlegt atvinnulíf skiptir okkur öll máli.