30. Apr

Stöðugleikarnir í Reykjavík

Hero icon

dags

30. apríl 2024

tími

kl. 11:30 - 13:30

staður

Norðurljósum, Hörpu

Reykjavík | Norðurljós, Harpa | 30. apríl | 11:30 – 13:30 | Hádegisverður í boði

Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra, Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Vilhjálmur Birgisson , formaður Starfsgreinasambandsins, og Jónína Guðmundsdóttir , framkvæmdastjóri Coripharma, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur , framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þá flytja Finnur Oddsson , forstjóri Haga, og Sigurður Brynjar Pálsson , forstjóri BYKO, hugvekjur.

Stöðugleikarnir 

Stöðugleikasamningurinn markaði vatnaskil á vinnumarkaði þar sem hóflegum launahækkunum til fjögurra ára er ætlað að skapa skilyrði fyrir stöðugleika. Aðilar vinnumarkaðarins lögðu þannig sitt af mörkum til efnahagslegs stöðugleika komandi ára.

Stöðugleiki kemur hins vegar ekki af sjálfu sér þrátt fyrir góða niðurstöðu kjarasamninga. Horfa þarf fram á veginn og tryggja að kjarasamningar verði til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, en ekki öfugt. Atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Þannig er hægt að ná tökum á verðbólgunni og eygja von um lækkun vaxta.

Á þessum grunni hefja Samtök atvinnulífsins eftirfylgni við kjarasamninga undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir. Stöðugleikarnir fara fram með hækkandi sól og samanstanda af opnum fundum fyrir atvinnulíf, stjórnvöld og almenning og fjölbreyttu miðlunarefni og samtali. Þá verður bætt í upplýsingagjöf til aðildarfyrirtækja SA um tæknileg útfærsluatriði kjarasamninganna.

Sofnum ekki á verðinum. Verkefnið er ekki búið.

Verum samtaka um aukna hagsæld.

Skráning á viðburð