10. Jún

Hringferð 2026: Reykjavík

Hero icon

dags

10. júní 2026

tími

kl. 08:30 - 10:00

staður

Sigtún 28, 105 Reykjavík

Samtök atvinnulífsins fara í hringferð um landið undir yfirskriftinni „Rjúfum vítahringinn“. Á opnum fundum og í heimsóknum verður rætt um stöðu atvinnulífsins og þær aðgerðir sem þarf til að ná aftur stöðugleika í efnahagslífinu.

Með hringferðinni vill SA draga fram hvernig hægt er að styrkja samkeppnishæfni, bæta rekstrarskilyrði og skapa grundvöll fyrir aukin lífsgæði um allt land. Á fundunum verður lögð áhersla á opna umræðu um áskoranir og tækifæri á hverjum stað.

Hringferðin er liður í því að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvað þarf til að rjúfa vítahring óstöðugleika og skapa sterkari grunn fyrir íslenskt atvinnulíf.

Þann 10. júní verðum við í salnum Háteigi á Grand Hotel í Reykjavík. Húsið opnar kl. 8:15 og fundur hefst 8:30.

Skráðu þig hér að neðan.