dags
06. maí 2026
tími
kl. 09:00 - 10:00
staður
Streymi & Borgartún 35, Hylur
Þann 6. maí verður haldinn fræðslufundur í Húsi atvinnulífsins í Hyl frá kl. 09:00–10:00. Þar verður verkefnið Allan hringinn kynnt og farið yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt vefinn til að einfalda flokkun á vinnustöðum og draga úr kostnaði.
Fundurinn er opinn og hægt er að taka þátt bæði á staðnum og í streymi, en skráning er nauðsynleg. Rakel Sigurveig Kristjánsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun mun kynna verkefnið og sýna hvernig fyrirtæki geta nýtt sér efni vefsins í framkvæmd. Að kynningu lokinni verða spurningar og umræður.
Verkefnið Allan hringinn hófst haustið 2024, Samtök atvinnulífsins lögðu könnun fyrir félagsmenn til að greina hvaða fræðslu og verkfæri vantaði helst varðandi flokkun innan fyrirtækja. Niðurstaðan er vefsíðan https://urgangur.is/allan-hringinn/, þar sem finna má hagnýtar leiðbeiningar um betri flokkun, sparnað og önnur gagnleg ráð sem fyrirtæki geta nýtt sér.
Skráðu þig hér
