Fréttir - 

17. apríl 2015

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins var kjörin á aðalfundi samtakanna sem fram fór í Húsi atvinnulífsins fimmtudaginn 16. apríl. Nýir stjórnarmenn eru Árni Stefánsson Húsasmiðjunni, Bjarni Bjarnason Orkuveitu Reykjavíkur, Jens Garðar Helgason Eskju, Gylfi Gíslason Jáverki, Jón Ólafur Halldórsson Olíuverzlun Íslands og Rannveig Grétarsdóttir Hvalaskoðun Reykjavíkur.

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins var kjörin á aðalfundi samtakanna sem fram fór í Húsi atvinnulífsins fimmtudaginn 16. apríl.  Nýir stjórnarmenn eru Árni Stefánsson Húsasmiðjunni, Bjarni Bjarnason Orkuveitu Reykjavíkur, Jens Garðar Helgason Eskju, Gylfi Gíslason Jáverki, Jón Ólafur Halldórsson Olíuverzlun Íslands og Rannveig Grétarsdóttir Hvalaskoðun Reykjavíkur.

Úr stjórninni ganga Adolf Guðmundsson Gullbergi, Arnar Sigurmundsson, Gunnar Sverrisson,  ÍAV, Margrét Kristmannsdóttir Pfaff, Tryggvi Þór Haraldsson Rarik og Eysteinn Helgason Kaupási.

Nýr varaformaður verður kjörinn næsta fundi stjórnar SA en Margrét Kristmannsdóttir hefur verið varaformaður Samtaka atvinnulífsins frá árið 2013.

Samtök atvinnulífsins þakka stjórnarmönnum sem nú hætta í stjórninni fyrir vel unnin störf. Lengst allra hefur Arnar Sigurmundsson setið en hann hefur verið í stjórn samtaka atvinnurekenda samfleytt frá árinu 1986. Þá tók hann sæti í stjórn VSÍ og í stjórn Samtaka atvinnulífsins árið 1999 þegar samtökin voru stofnuð.

Björgólfur Jóhannsson, var endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins í rafrænni atkvæðagreiðslu meðal aðildarfyrirtækja samtakanna með 98% greiddra atkvæða og var þátttaka góð.

Stjórn SA 2015-2016

Ari Edwald                                                           

Árni Stefánsson, Húsasmiðjan.

Bjarni Bjarnason, Orkuveita Reykjavíkur.     

Eyjólfur Árni Rafnsson, Mannvit.

Grímur Sæmundsen, Bláa Lónið                     

Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís.

Gylfi Gíslason, Jáverk.                                      

Höskuldur H. Ólafsson, Arion banki.

Jens Garðar Helgason, Eskja.

Jens Pétur Jóhannsson, Rafmagnsverkstæði RJR.

Jón Ólafur Halldórsson, Olíuverzlun Íslands.

Kolbeinn Árnason, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi.                                                                           

Margrét Sanders, Deloitte.

Ólafur Rögnvaldsson, Hraðfrystihús Hellissands.

Rannveig Grétarsdóttir, Hvalaskoðun Reykjavík.

Rannveig Rist, Rio Tinto Alcan á Íslandi.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, Vátryggingafélag Íslands.

Sigsteinn P. Grétarsson, Marel.

Þorsteinn Már Baldvinsson, Samherji.

Þórir Garðarsson, Iceland Excursions Allrahanda.

Samtök atvinnulífsins