12. júní 2025

Vel heppnuð ferð um Snæfellsnes

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Vel heppnuð ferð um Snæfellsnes

Hringferð Samtaka atvinnulífsins hélt áfram snemma í gærmorgun en að þessu sinni lá leiðin um Snæfellsnes.

Fyrsti viðkomustaður var Grundarfjörður, þar sem sjávarútvegsfyrirtækið G. Rún tók á móti hópnum, kynnti starfsemi sína og ræddi tækifæri og áskoranir sem fylgja atvinnurekstri þeirra.

Fundurinn í Ólafsvík var vel sóttur af heimafólki.

Næsti liður ferðarinnar var vinnufundur í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Þar tóku fulltrúar SA á móti heimafólki, snæddu hádegisverð og kynntu starfsemi samtakanna. Í framhaldinu var rætt um helstu áskoranir fyrirtækja á svæðinu, hvað stjórnvöld geti gert til að styðja við aukin tækifæri og hvernig hægt sé að efla útflutningsgreinar.

Guðmundur Kristjánsson, formaður SFS.

Ferðinni lauk með heimsóknum til sjávarútvegsfyrirtækjanna Sjávariðjunnar, KG Fiskverkunar og Hraðfrystihússins á Hellissandi, undir leiðsögn Guðmundar Kristjánssonar, formanns SFS.

Næstu áfangastaðir hringferðarinnar eru Þorlákshöfn í dag og Reykjavík á morgun. Hægt er að skrá sig til þátttöku hér á heimasíðu samtakanna.

Samtök atvinnulífsins