1 MIN
Vara við auknum ríkisafskiptum í frumvarpi til sveitarstjórnarlaga
Samtök atvinnulífsins hafa skilað inn umsögn um nýtt frumvarp til sveitarstjórnarlaga sem nú liggur fyrir Alþingi. Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun gildandi laga og miðar meðal annars að auknu gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélaga, skýrari reglum um starfshætti og aukinni samvinnu þeirra á milli.
Í umsögn sinni leggja samtökin áherslu á mikilvægi sjálfstæðis sveitarfélaga sem verndað er í stjórnarskrá. Þau vara við breytingum sem kunna að auka inngrip ríkisvaldsins í málefni sveitarfélaga og telja að gæta verði meðalhófs í slíkum heimildum.
SA fagna þó markmiðum um að efla sveitarstjórnarstigið, meðal annars með því að stuðla að stærri og burðugri sveitarfélögum. Samtökin benda á að fámenni margra sveitarfélaga dragi úr getu þeirra til að sinna lögbundnum verkefnum með fullnægjandi hætti. Því sé mikilvægt að skapa hvata til sameininga og tryggja að regluverk, þar á meðal um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, styðji við slíka þróun.
Í umsögninni er einnig bent á slaka fjárhagsstöðu sveitarfélaga til lengri tíma. Þrátt fyrir auknar tekjur hafi rekstur þeirra oft verið í ójafnvægi sem undirstriki þörfina fyrir aukna hagkvæmni og skýrari reglur.
Samtökin gera sérstakar athugasemdir við ákvæði sem veita ráðherra víðtækar heimildir til inngripa, meðal annars til að hækka útsvar eða leggja á sektir. SA telja slíkar heimildir geti verið óhóflegar og gangi gegn sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga. Þá er gagnrýnt að skýrar málsmeðferðarreglur skorti í sumum tilvikum.
Að lokum styðja samtökin aukið kostnaðarmat lagasetningar en kalla eftir skýrari reglum um viðbrögð þegar slíkt mat reynist ófullnægjandi. Jafnframt leggja þau áherslu á að sambærilegt mat á áhrifum á atvinnulífið verði lögfest.