1 MIN
Telja gjaldtöku og leyfiskerfi geta skert samkeppnishæfni
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn um frumvarp til laga um lagareldi þar sem markmiðið er að styrkja umgjörð greinarinnar, draga úr umhverfisáhrifum og efla sjálfbæra verðmætasköpun. Samtökin taka almennt undir markmið frumvarpsins en leggja áherslu á að útfærsla lykilákvæða þurfi að vera skýrari og betur ígrunduð.
Megináhersla umsagnarinnar snýr að gjaldtöku. SA fagna því að stefnt sé að afkomutengdu framleiðslugjaldi en telja útfærsluna verulega annmörkum háða. Í umsögninni segir að fyrirhugað fyrirkomulag „muni ekki endurspegla með fullnægjandi hætti raunverulega afkomu rekstraraðila heldur byggi á forsendum sem eru til þess fallnar að kerfisbundið ofmeta tekjur og vanmeta kostnað.“ Samtökin gagnrýna einnig að stuðst sé við meðaltalsútreikninga og benda á að slíkt geti gengið gegn jafnræðis- og meðalhófssjónarmiðum.
Sérstaklega er varað við svokölluðu grunnframleiðslugjaldi. Að mati SA gæti það lagst á fyrirtæki þrátt fyrir taprekstur og þannig „gengið gegn markmiðum frumvarpsins um uppbyggingu og verðmætasköpun“. Samtökin benda á að greinin hafi átt undir högg að sækja og að fjögur af fimm fyrirtækjum hafi verið rekin með tapi árið 2024 sem undirstriki mikilvægi þess að gjaldtaka taki mið af raunverulegri afkomu.
Þá er fjallað ítarlega um ákvæði um endurnýjun rekstrarleyfa. Samkvæmt frumvarpinu eiga leyfi að gilda í 16 ár og verða háð frammistöðumati við endurnýjun. SA telja að slíkt mat geti skapað verulegan ófyrirsjáanleika. Í umsögninni kemur fram að „verulega skorti á skýr og hlutlæg viðmið um hvað teljist brot“ og hvernig meta eigi alvarleika þeirra. Samtökin vara við að niðurstaða matsins geti í reynd jafngilt synjun um áframhaldandi starfsemi.
Samtökin leggja því til að endurnýjun leyfa byggist frekar á skýrum og hlutlægum skilyrðum um að fyrirtæki uppfylli gildandi lög og reglur, þannig að fyrirsjáanleiki aukist og fjárfestingar verði raunhæfar.
Í umsögninni gera SA athugasemdir við markmiðsákvæði frumvarpsins, einkum orðalag um að starfsemin skuli uppfylla „ströngustu staðla og kröfur“. Samtökin telja mikilvægt að ákvæðið taki mið af raunhæfum aðstæðum og sveigjanleika en leggja þó áherslu á að markmið um sjálfbærni og vernd villtra stofna séu réttmæt.
Að lokum hvetja SA til þess að gjaldtökuákvæði og reglur um leyfisveitingar verði endurskoðaðar áður en frumvarpið verður samþykkt, svo tryggja megi jafnvægi milli uppbyggingar greinarinnar, samkeppnishæfni og ábyrgðar í umhverfismálum.