10. desember 2025

Stjórnarstörf í lífeyrissjóðum

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Stjórnarstörf í lífeyrissjóðum

Stjórnarstörf í lífeyrissjóðum
Samtök atvinnulífsins óska ár hvert eftir því að hæfir einstaklingar, sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum SA eða hagsmunasamtökum þeirra, gefi kost á sér til starfa í stjórnum lífeyrissjóða.
Samkvæmt kjarasamningi SA og ASÍ skipa samtökin helming stjórnarmanna í þeim sjö lífeyrissjóðum sem eru á samningssviði aðila og er framkvæmdastjórn SA falin tilnefning stjórnarmanna.


Stjórnarmenn þurfa að vera lögráða, fjárhagslega sjálfstæðir og með gott orðspor. Leitað er eftir einstaklingum með fjölbreytta reynslu og þekkingu, meðal annars reynslu af:

  • Lífeyrismálum
  • Stjórnun
  • Stefnumótun
  • Áætlanagerð og reikningshaldi
  • Lögfræðilegum málefnum
  • Fjármálamarkaði

Úr þeim hópi sem gefur kost á sér til stjórnarstarfa verða tilnefndir þeir sem metnir eru hæfastir í ljósi þeirra eiginleika sem sóst er eftir í viðkomandi stjórn. Mat á umsóknum og hæfni er unnið í samvinnu við sérfræðinga í ráðningum og hæfnisnefnd SA.


Um er að ræða eftirfarandi lífeyrissjóði:

  • Birta lífeyrissjóður
  • Festa lífeyrissjóður
  • Gildi – lífeyrissjóður
  • Lífeyrissjóður Rangæinga
  • Lífeyrissjóður verzlunarmanna
  • Lífeyrissjóður Vestmannaeyja
  • Stapi lífeyrissjóður

Umsóknir með kynningarbréfi og ferilskrá skal senda á netfangið stjornarseta@sa.is fyrir 15. desember næstkomandi.

Samtök atvinnulífsins