04. júní 2025

Skýringar á mikilli árshækkun launavísitölunnar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Skýringar á mikilli árshækkun launavísitölunnar

Árshækkun launavísitölunnar mældist 8,2% í apríl. Það kann að vekja undrun að hækkunin sé svona mikil á síðustu tólf mánuðum, sérstaklega í ljósi þess að samið var á nokkuð hóflegum nótum í kjarasamningum sem undirritaðir voru á almennum vinnumarkaði í febrúar 2024, sem og í flestum samningum sem á eftir fylgdu — bæði á almennum og opinberum markaði.

Könnum málið nánar. Strax við mánaðamótin eftir undirritun stöðugleikasamningsins mældist töluverð hækkun launavísitölunnar vegna þess stóra hóps sem samið var við í tengslum við þessa stefnumótandi samninga. Á mánuðunum þar á eftir, og fram yfir sumarið 2024, var samið við fleiri og fleiri hópa launafólks, sem skýrir að hluta til þá hækkun á launavísitölu á almennum markaði sem átti sér stað á þessu tímabili. Þetta sést vel á myndinni hér að ofan þegar launavísitalan fyrir almenna markaðinn er skoðuð. Launavísitalan alls hækkaði hins vegar minna þar sem enn var ósamið á opinbera vinnumarkaðnum framan af.

Í janúar kom til framkvæmda önnur kjarasamningsbundin launahækkun á almennum markaði. Því mældust í janúar og febrúar 2025 tvær slíkar hækkanir inn í ársbreytingu launavísitölunnar fyrir nánast allan almenna markaðinn. Tvær hækkanir munu einnig mælast í ársbreytingu launavísitölunnar síðar á árinu fyrir þá hópa sem samið var við í kjölfar stöðugleikasamningsins.

Sumarið 2024 og fram á vetur var samið við stóra hópa á opinbera markaðnum, og voru þeir samningar afturvirkir frá apríl 2024. Hins vegar mælist afturvirkni ekki í launavísitölunni, þar sem hækkanir mælast fyrst þegar þær koma formlega til framkvæmda. Það þýðir að frá og með apríl 2025, þegar önnur umsamin hækkun tekur gildi, og vel fram á árið, munu mælast tvær launahækkanir í árstakti launavísitölunnar og einnig í vísitölu launa á opinberum vinnumarkaði.

Þessu til viðbótar kom kauptaxtaauki, sem samið var um á almennum markaði, til framkvæmda í apríl síðastliðnum. Hann byggir á þróun launa á síðasta ári. Einnig var samið um sambærilegan auka á opinbera markaðnum — svokallaðan launatöfluauka — sem kemur til framkvæmda í september fyrir suma hópa opinberra starfsmanna.

Það eru fyrst og fremst tæknilegar ástæður fyrir því hversu mikil árshækkun launavísitölunnar mælist um þessar mundir. Árshækkun vísitölunnar segir þó aðeins hálfa söguna. Vegna bæði launaauka og þess að endurnýjun margra kjarasamninga, sem og kjarasamningsbundnar hækkanir á hluta almenns og opinbers markaðar, drógust fram á þetta ár, mælast tvær launahækkanir í ársbreytingu launavísitölunnar fyrir marga hópa vel inn á árið 2025.

Þess ber þó að geta að spenna á vinnumarkaði hefur farið minnkandi. Seðlabankinn gerir ráð fyrir að dregið verði verulega úr hækkunartakti launavísitölunnar þegar áhrif ofangreindra þátta fjara út — enda virðist ekki mikið launaskrið vera í gangi um þessar mundir.

Samtök atvinnulífsins