1 MIN
SA styðja stofnun innviðafélags með skýrum fyrirvörum
Samtök atvinnulífsins taka jákvætt í frumvarp um stofnun innviðafélags sem ætlað er að efla fjármögnun og uppbyggingu samgönguinnviða á Íslandi. Í umsögn samtakanna kemur fram að brýn þörf sé á aukinni fjárfestingu í innviðum, enda hafi uppbygging setið á hakanum um árabil og viðhaldsskuld safnast upp.
SA telja að innviðafélag geti verið mikilvægt skref til að bæta stöðuna, sérstaklega ef það stuðlar að aukinni þátttöku einkaaðila. Samvinnuleiðir hins opinbera og einkageirans (PPP) geti tryggt betri áhættudreifingu, aukna skilvirkni og hraðari framkvæmd verkefna. Slík nálgun geti einnig stuðlað að betra viðhaldi og lægri heildarkostnaði til lengri tíma.
Samtökin leggja þó áherslu á að útfærsla félagsins skipti sköpum. Óvissa um flokkun þess í ríkisreikningi geti haft veruleg áhrif á virkni þess og möguleika til að laða að einkafjárfestingu. Ef félagið verður að mestu fjármagnað af ríkissjóði sé hætta á að markmiðin náist ekki að fullu og að breytingin feli fyrst og fremst í sér tilfærslu á fjármunum innan hins opinbera.
Jafnframt vara SA við mögulegum freistingum til aukinnar skuldsetningar ríkisins og kalla eftir auknu aðhaldi í opinberum fjármálum samhliða stofnun félagsins. Þá er bent á að mikilvægt sé að samræma gjaldtöku, svo sem veggjöld, við aðra skattheimtu og tryggja að tekjur nýtist raunverulega til uppbyggingar innviða.
Samtökin undirstrika einnig að vanda þurfi til verka við tilfærslu eigna til félagsins og að tryggja þurfi raunhæft mat á þeim. Að lokum leggja SA áherslu á að verkefni félagsins þurfi að vera arðbær og að skýr rammi sé um áhættu og ávinning samstarfsaðila.
Að mati SA getur innviðafélag orðið öflugt tæki til framfara ef rétt er staðið að málum.