1 MIN
SA og ASÍ fagna skynsemisreglu
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa skilað sameiginlegri umsögn vegna áforma um breytingar á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (mál nr. S-35/2026). Meginefni frumvarpsins er að auka vægi svokallaðrar skynsemisreglu við eigna- og áhættustýringu lífeyrissjóða og draga á móti úr magnbundnum takmörkunum. SA og ASÍ taka undir þau sjónarmið sem liggja að baki breytingunum.
Jafnræði launafólks og atvinnurekenda
Í umsögninni er jafnframt áréttað að íslenska lífeyriskerfið sé byggt á kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins og að lífeyrissjóðir séu ekki hefðbundnar fjármálastofnanir heldur félagsleg grunnstoð í afkomutryggingu launafólks. Stjórnkerfi sjóðanna byggir á jafnræði launafólks og atvinnurekenda og fulltrúalýðræði sem endurspeglar sameiginlega ábyrgð aðila á rekstri og þróun kerfisins. SA og ASÍ leggja áherslu á að það fyrirkomulag og frjálsir kjarasamningar verði virtir.
Gera athugasemdir við hertar kröfur til tryggingastærðfræðinga
Gerðar eru athugasemdir við hugmyndir um hertar kröfur til tryggingastærðfræðinga lífeyrissjóða, enda telja SA og ASÍ slíkar breytingar bæði kostnaðarsamar og illa til þess fallnar að taka mið af sérstöðu lífeyrissjóða. Þá er lögð áhersla á að eftirlitsgjald til Fjármálaeftirlitsins sé í samræmi við raunkostnað og að meðalhófs sé gætt við gjaldtöku.