12. febrúar 2024

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2023. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins og hefur sú breyting verið gerð að tilnefningaflokkarnir eru nú tveir, fyrir stærri og minni fyrirtæki.

Óskað er eftir því að greinargerð fylgi með tilnefningunni, en við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 11. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið urn@urn.is eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Borgartúni 26, 105 Reykjavík.

Á síðasta ári hlutu fyrirtækin Jáverk og Gefn viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2022.

Upplýsingar um fyrri verðlaunahafa.

Samtök atvinnulífsins