Fréttir - 

15. september 2023

Opið fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2023

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Opið fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2023

Tekið við tilnefningum til 13. október

Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög óska eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins fyrir 13. október 2023. Verðlaunin verða veitt af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á Umhverfisdegi atvinnulífsins 21. nóvember í Hörpu.

Nánar um forsendur dómnefndar

Tekið er við tilnefningum* hér á meðfylgjandi umsóknarformi. Veitt eru tvenn verðlaun; umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins.

Dómnefnd velur úr tilnefningum en til að tilnefning teljist gild þurfa fyrirtæki að uppfylla sett viðmið og rökstuðningur þarf að fylgja.

Tilnefna þarf fyrirtæki sérstaklega undir hverjum flokki en einnig er hægt að tilnefna fyrirtæki fyrir báða flokka.

*Einungis er hægt að tilnefna skráð aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins.

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Tilnefna fyrirtæki

Skráning á Umhverfisdag atvinnulífsins

Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 var Norðurál

Sjóvá átti umhverfisframtak ársins 2022

Samtök atvinnulífsins