28. júní 2025

Opið bréf til forystukvenna ríkisstjórnar Íslands

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Opið bréf til forystukvenna ríkisstjórnar Íslands

Samtök atvinnulífsins sendu á föstudag opið bréf til forystukvenna ríkisstjórnarinnar þar sem lýst var alvarlegri stöðu og áhyggjum í atvinnulífinu.

„Við höfum á síðustu vikum farið vítt og breitt um landið á hringferð SA. Alls staðar þar sem við höfum komið hefur forystufólk fyrirtækja og sveitarfélaga og aðrir áhyggjur stöðunni og þá ekki síst af þeirri fyrirvaralitlu og tvöföldu hækkun á veiðigjöldum og óljósum áformum um frekari álögur á ferðaþjónustu og orku,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA. „Þá höfum við ekki síður áhyggjur af þeim breytingum sem felast í frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra sem varðar víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna og almannatrygginga. Þar er vegið alvarlega að því kerfi sem við höfum byggt upp á löngum tíma og ekki var vitað annað en að mikil sátt ríkti um. Í bréfi okkar til forystukvenna ríkisstjórnarinnar ítrekuðum við þá skoðun okkar að eina rétta leiðin til aukinna lífsgæða sé að auka verðmætasköpun. Það er einfaldlega mikil hætta á að við séum að veikja samkeppnishæfni okkar helstu útflutningsgreina með óhóflegri skattlagningu.“

Efni bréfsins er hér að neðan:

Mikil lífsgæði á Íslandi byggjast á öflugu og fjölbreyttu atvinnulífi, ekki síst öflugum útflutningsgreinum. Vöxtur íslensks atvinnulífs leiðir þannig til bættra lífskjara fyrir landsmenn alla. Eitt mikilvægasta hagsmunamál íslensks samfélags er að tryggja öruggt og einfalt rekstrarumhverfi fyrir íslensk fyrirtæki svo þau séu samkeppnishæf á tímum sem einkennast af gríðarlegri óvissu í heimsmálunum.

Þegar útlit er fyrir versnandi horfur í efnahagsmálum, óvissa vex stöðugt og stríð geisa í heiminum, er einkar mikilvægt að stjórnvöld og atvinnulíf taki höndum saman til að tryggja samkeppnishæfni landsins og áframhaldandi góð lífskjör landsmanna. Þannig sækjum við fram og mætum þeim áskorunum sem við okkur blasa. Þessu hafa flestar af okkar vinaþjóðum áttað sig á, því efnahagslegur styrkur er forsenda þjóðaröryggis. Áhersla stjórnvalda hlýtur að vera að skapa meiri verðmæti fremur en að auka skattheimtu sem er letjandi og dregur úr verðmætasköpun. Hærri skattprósenta á lakari afkomu getur ekki verið markmiðið.

Íslenskt atvinnulíf hefur sýnt ótrúlega útsjónarsemi og seiglu þegar áföll hafa dunið yfir. Óvissan sem atvinnulífið býr við vegna átaka á alþjóðasviðinu er næg þótt heimatilbúnar ógnir bætist ekki við.

Þegar stjórnvöld ganga jafn hart fram með orðum, aðgerðum og boðuðum lagasetningum og raun ber vitni gagnvart einni atvinnugrein hljóta Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök að bregðast við. Engin atvinnugrein getur lifað við þá óvissu sem felst í óskýrum lagaramma, getur ekki dafnað þegar virkur tekjuskattur er orðinn nálægt 80%, og hlýtur óhjákvæmilega að verða fyrir miklu höggi þegar skattar eru meira en tvöfaldaðir með nánast engum fyrirvara.

Fyrirhugaðar auknar álögur á fleiri útflutningsgreinar, orkufyrirtæki og ferðaþjónustu, gera ekkert nema að auka á óvissuna sem er næg fyrir. Þá er vegið að sjálfbærni samfélagsins með boðuðum breytingum á okkar einstaka lífeyriskerfi án samráðs við aðila vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðina sjálfa sem getur haft í för með sér ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

Traust er undirstaða framfara. Íslenskt atvinnulíf vill nú sem fyrr eiga samtal við stjórnvöld um framfarir og verðmætasköpun til að efla lífsgæði allra landsmanna.

Samtök atvinnulífsins