12. júní 2025

Myndasafn: Norðrið sótt heim með krafti

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Myndasafn: Norðrið sótt heim með krafti

Í síðustu viku heimsóttu Samtök atvinnulífsins Sauðárkrók og Akureyri sem hluta af árlegri hringferð samtakanna.

Veður og færð á miðvikudag settu strik í reikninginn varðandi fyrirhugaðan fund á Sauðárkróki. Þrátt fyrir það tókst að fara í fyrirtækjaheimsóknir á Króknum, þar sem heimsótt voru Kaupfélag Skagfirðinga, Dögun og Steinull.

Fimmtudagurinn hófst með heimsókn til TDK við Krossanes á Akureyri. Að heimsókn lokinni var efnt til vinnufundar í Hofi, þar sem fjölbreyttur hópur félagsmanna SA og annarra áhugasamra kom saman. Að fundi loknum voru heimsótt fyrirtækin Slippurinn DNG og Samherji.

Hér að neðan má sjá myndir úr ferðinni.

Samtök atvinnulífsins