09. júní 2025

Hringferð SA 2025: Fyrsta vika að baki

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hringferð SA 2025: Fyrsta vika að baki

Hringferð Samtaka atvinnulífsins hófst með heimsókn á Suðurnes síðasta þriðjudag. Hringferðin markar upphaf nýs starfsárs SA sem helgað er útflutningsgreinum og er yfirskrift hringferðarinnar Öflugur útflutningur - aukin lífsgæði. Fyrsti vinnufundurinn var haldinn á Radisson Hotel Park Inn í Reykjanesbæ í hádeginu þriðja júní. Auk vinnufundarins var hús tekið hjá Algalíf, Bláa lóninu og Grindavík Seafood þar sem formaður SA, framkvæmdastjóri og annað starfsfólk fengu kynningar á starfsemi fyrirtækjanna.

Það haustaði snemma í ár

Veður og færð settu strik í reikninginn varðandi fyrirhugaðan fund SA á Sauðárkróki. Veður kom þó ekki í veg fyrir fyrirtækjaheimsóknir á Króknum. Farið var í heimsókn til Kaupsfélags Skagfirðinga, Dögunar og Steinullarverksmiðjunnar.

Á fimmtudag hófst dagskráin með heimsókn til TDK við Krossanes áður en blásið var til fundar í Hofi þar sem fjölbreyttur hópur félagsmanna SA og annarra áhugasamra fór fram. Að fundi loknum var farið í heimsókn í Slippinn og til Samherja.

Fjölbreytt fyrirtæki en sameiginlegir hagsmunir

„Þessir fundir hafa verið ákaflega dýrmætir fyrir okkur og mikilvægt innlegg nú í upphafi starfsársins sem helgað er útflutningsgreinum. Þau fyrirtæki sem eiga aðild að SA eru ótrúlega fjölbreytt en hagsmunir þeirra eru í stórum dráttum sameiginlegir og mikilvægt að draga þá fram á skýran hátt á tímum sem einkennast af ólgu á alþjóðasviðinu og áformum um aukna skattheimtu á Íslandi,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA.

Hringferðin heldur áfram

Hringferðinni er áfram haldið á miðvikudag þegar verður fundað í Ölfusi, því næst er það Ólafsvík á miðvikudag og síðan er síðasti fundur þessarar lotu haldinn í Reykjavík á föstudag. Hægt er að fá nánari upplýsingar um Hringferð SA 2025 hér. Einnig hvetjum við fólk til að fylgjast með starfi SA á Facebook.

Frá fundi SA í Hofi á Akureyri.

Á fundi SA á Radisson Park Inn í Reykjanesbæ.

Samtök atvinnulífsins