06. mars 2026

Fulltrúar atvinnulífsins ræddu ETS-kerfið í Brussel 

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fulltrúar atvinnulífsins ræddu ETS-kerfið í Brussel 

Samtök atvinnulífsins, SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og Samtök ferðaþjónustunnar fóru ásamt fulltrúum Eimskips og Icelandair til Brussel og funduðu með aðilum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins dagana 3.–5. mars.

Tilgangur ferðarinnar var að koma sjónarmiðum og hagsmunum íslensks atvinnulífs á framfæri í tengslum við endurskoðun framkvæmdastjórnar ESB á á ETS-kerfinu fyrir flug og sjóflutninga sem fer fram í sumar.

Frá vinstri: Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Eimskips, Heiða Njóla Guðbrandsdóttir forstöðumaður hjá Icelandair, Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA, Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair, Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra Íslands í Brussel, Jón Ólafur Halldórsson formaður SA, Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Icelandair, Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Ísak Einar Rúnarsson forstöðumaður málefnasviðs SA, Katrín A. Sverrisdóttir forstöðumaur EES-samræmingar hjá sendiráði Íslands í Brussel, Finnur Þór Birgisson varamaður sendirherra,  Ingólfur Friðriksson skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu Utanríkisráðuneytisins og Hugrún Elvarsdóttir verkefnastjóri á málefnasviði SA.

Á fundunum var sérstaklega rætt um hvernig núverandi fyrirkomulag ETS-kerfisins virkar í framkvæmd fyrir tvær lykil atvinnugreinar fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag, flug og siglingar, með tilliti til sérstöðu Íslands.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Eimskips fóru í viðtal í Speglinum og er tengill á umfjöllunina neðst í fréttinni.

Hópurinn fundaði meðal annars með Filip Cornelis, yfirmanni flugmála hjá DG MOVE, Annika Kroon, sviðsstjóra sjóflutninga hjá DG MOVE, Polona Gregorin, sviðsstjóra samgöngumála hjá DG CLIMA, skrifstofum framkvæmdastjóranna Apostolos Tzitzikostas og Wopke Hoekstra og Matúš Minárik frá skrifstofu framkvæmdastjórnar ESB, auk sendiherra Íslands í Brussel og fulltrúum EFTA.

Á næstu vikum og mánuðum verður áfram unnið að því að koma sérstöðu Íslands og sjónarmiðum íslensks atvinnulífs á framfæri í tengslum við endurskoðun ETS-kerfisins með ítarlegum greiningum á áhrifum kerfisins á flug og siglingar.

Samtök atvinnulífsins