12. febrúar 2026

BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru afhend við hátíðlega athöfn á Menntadegi atvinnulífsins á Hilton Reykjavík Nordica í gær. BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026.

Í umsögn dómnefndar segir: „Val dómnefndar á BM Vallá byggir á því að fræðsla sé ekki jaðarverkefni heldur órjúfanlegur hluti af erfðamengi fyrirtækisins, bæði í rekstri og mannauðsmálum. Frá árinu 2020 hefur fyrirtækið lyft grettistaki í fræðslumálum innan byggingariðnaðarins og markvisst umbreytt menningu, viðhorfum og sjálfstrausti starfsfólks.
Hjá BM Vallá starfar fjölþjóðlegur hópur fólks og hefur fyrirtækinu tekist að tryggja raunverulegt aðgengi allra að fræðslu með inngildandi nálgun, fræðslu á vinnutíma og lausnum sem taka mið af raunverulegum aðstæðum íslensks vinnumarkaðar. Með ástríðu, metnaði og mælanlegum árangri sýnir BM Vallá í verki hvernig fræðsla getur eflt einstaklinga, styrkt fyrirtæki og haft jákvæð áhrif á samfélagið í heild.

BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026

Atlas Primer Menntasproti atvinnulífsins 2026

Niðurstaða dómnefndar í vali á Menntasprota atvinnulífsins 2026 var Atlas Primer. „Atlas Primer sameinar tæknilega forystu, samfélagslega ábyrgð og alþjóðlegan metnað í hágæða stafrænni fræðslu. Með nýstárlegri samtalsgervigreind getur menntatæknifyrirtækið umbreytt því hvernig fræðsla og starfsþróun fara fram, gert nám aðgengilegra, mannvænna og skilvirkara fyrir ólíka hópa og jafnað aðstöðumun þeirra sem eiga undir högg að sækja í hefðbundnu fræðsluumhverfi. Atlas Primer sýnir að fjárfesting í stafrænni fræðslu er lykilforsenda samkeppnishæfni á tímum örra breytinga og hefur með alþjóðlegum árangri sínum skapað raunveruleg verðmæti bæði hér heima og erlendis. Með þessari vegferð er Atlas Primer fyrirmynd íslenskra sprotafyrirtækja og sannfærandi dæmi um það hvernig íslensk menntatækni getur haft víðtæk áhrif, eflt mannauð og lagt grunn að sjálfbærri framtíð.“

Atlas Primer er Menntasproti atvinnulífsins 2026

AÞ Þrif og Krónan fengu tilnefningar

Fjöldi tilnefninga barst fyrir Menntaverðlaunin. Voru þrjú fyrirtæki tilnefnd til Menntafyrirtækis ársins en BM Vallá stóð, eins og áður segir, uppi sem sigurvegari. Auk BM Vallár voru AÞ Þrif og Krónan tilnefnd. Í umsögn dómnefndar um AÞ Þrif sagði meðal annars: „Með skýrri sýn á samfélagslega ábyrgð hefur AÞ Þrif ekki einungis litið á fræðslu sem tæki til betri þjónustu heldur einnig sem mikilvæga leið til inngildingar og virkrar þátttöku fólks á íslenskum vinnumarkaði til lengri tíma. AÞ Þrif sýnir með sannfærandi hætti að fræðsla er ekki kostnaður heldur fjárfesting í fólki, gæðum og sjálfbærum rekstri.“

AÞ Þrif voru tilnefnd til Menntaverðlauna atvinnulífsins

Dómnefnd sagði í umsögn sinni um Krónuna að fyrirtækið hefði í krefjandi rekstarumhverfi „valið að leggja áherslu á þverfaglega nálgun í fræðslumálum. Með öflugum Krónuskóla, markvissri nýliðafræðslu og leiðtoga- og stjórnendaþjálfun hefur fyrirtækið styrkt vinnustaðamenningu og eflt fagmennsku í framlínunni. Mælanlegar niðurstöður sýna aukna ánægju starfsfólks og sterkari tengingu við fyrirtækið.“

Krónan var tilnefnd til Menntaverðlauna atvinnulífsins

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins