Menntamál - 

14. febrúar 2024

Bara tala hlýtur Menntasprotann 2024

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Bara tala hlýtur Menntasprotann 2024

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt í dag fyrirtækjum sem skara fram úr í fræðslu- og menntamálum. Elko er Menntafyrirtæki ársins og Bara tala hlaut Menntasprotann 2024. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, framkvæmdastjóri SA, afhentu verðlaunin á Menntadegi atvinnulífsins sem fram fór í Hörpu í dag.

Bara tala hlýtur Menntasprotann 2024

Bara tala hlaut í morgun Menntasprotann árið 2024. Bara tala er íslenskur menntasproti sem hóf starfsemi sína árið 2023. Bara tala nýtir sér gervigreind og íslenska máltækni til að veita fyrirtækjum og stofnunum stafrænt og gagnvirkt íslenskunám fyrir erlent starfsfólk sitt. Boðið er upp á grunnnámskeið í íslensku fyrir vinnustaði, en einnig er boðið upp á starfstengt íslenskunám sem er þróað í góðu samstarfi við fyrirtækin og er þannig sérsniðið að atvinnulífinu.

Með Bara tala gefst fyrirtækjum tækifæri til að þjálfa starfsfólkið sitt í íslensku með áherslu á orðaforða og setningar sem notast er við á vinnustöðum. Hjá Bara tala er áhersla lögð á hljóð, myndefni og talmál og eykur þar með orðarforða, hlustunarfærni og þjálfar aðfluttra í að tala íslensku.

Í dag hefur fjöldi atvinnurekenda innleitt Bara tala fyrir erlenda starfsfólkið sitt en alls hafa yfir 20 stór fyrirtæki innleitt Bara tala, sjö sveitarfélög og Vinnumálastofnun veitir einnig erlendu fólki í atvinnuleit aðgang að lausninni. Nú síðast gerði Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið fimm ára samning við Bara tala um að þróa og innleiða stafræna íslenskukennslu fyrir allt fólk í heilbrigðis-, félags- og umönnunargreinum. Á innan við einu ári hefur Bara tala gjörbylt íslenskukennslu fyrir erlent starfsfólk og ljóst er að lausnin Bara tala er komin til að vera.

„Við vonumst til þess að Íslendingar, eða þeir sem að tala tungumálið nú þegar, verði betri í því að bara hlusta á meðan að þau sem eru að ná tökum á tungumálinu fá svigrúm til að bara tala. Íslenska með hreim er nefnilega tákn um hugrekki,“ segir Jón Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri Bara tala.

Yfirskrift menntadagsins að þessu sinni var Göngum í takt: Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins? og hér má horfa á fundinn á upptöku:


Samtök atvinnulífsins