Vinnumarkaðsvefur

mest lesið á vefnum

Dagvinna og deilitölur

Kjarasamningar

Kaupgjaldsskrá SA

Ráðningarsamningar

Greinar og tíðindi

Fréttir07.09.2026

Aukinn kaupmáttur en ójöfn áhrif vaxta

Lesa meira

Fréttir31.08.2026

Flutningskerfið má ekki verða hemill á verðmætasköpun

Lesa meira

Fréttir25.08.2026

Hvað felst í aðildarviðræðum við ESB?

Lesa meira
Sjá allar greinar og tíðindi

Starfsmannamál – myndbönd

Sjá öll myndbönd

hvað er á döfinni?

01. október 2026

01. október

kl. 15:00 - 17:00

Ársfundur atvinnulífsins 2026

Ársfundur atvinnulífsins verður haldinn 1. október í Silfurbergi í Hörpu. Á fundinum beinum við sjónum að tækifærunum sem Ísland hefur til aukinnar verðmætasköpunar og því sem þarf að breytast svo við getum nýtt þau. Hvernig eflum við samkeppnishæfni Íslands? Hvað heldur aftur af fjárfestingu, nýsköpun og framförum? Og hvernig getum við þróað vinnumarkaðinn þannig að hann styðji betur við stöðugleika, kaupmátt og vaxandi lífskjör? Þátttakendur í dagskrá fundarins verða meðal annarra: Baldvin Þorsteinsson | Birna Ósk Einarsdóttir | Bjarni Benediktsson | Bryndís Hlöðversdóttir | Gylfi Jónu Arnbjarnarson | Jón Ólafur Halldórsson | Kristrún Frostadóttir | Rannveig Rist | Skúli Mogensen | Þorsteinn Víglundsson. Fundurinn stendur frá kl. 15-17 og að fundi loknum verður boðið til móttöku í Björtuloftum í Hörpu þar sem verða léttar veitingar og ljúfir tónar. Á ársfundinum ræðum við þær ákvarðanir og aðgerðir sem þarf til að leysa krafta atvinnulífsins úr læðingi og skapa traustan grunn að aukinni verðmætasköpun og auknum lífgæðum. Tækifærin eru til staðar. Nú þarf að nýta þau. Sækjum fram.

Sjá allt á döfinni

Algengar spurningar

Get ég fengið aðstoð frá lögmanni með starfsmannamál?

Já, ef þú ert félagsmaður getur þú fengið lögfræðilega aðstoð við túlkun kjarasamninga og stjórn starfsmannamála, sem hafa að gera með ráðningar, uppsagnir, vinnutíma, veikindarétt, orlof og fleira. Þú getur sent tölvupóst á sa@sa.is, hringt í síma 591 0000 eða haft beint samband við þinn tengilið á vinnumarkaðssviði SA.

Hvar sæki ég um félagsaðild?

Hér getur þú sótt um aðild að SA og aðildarsamtökum okkar (Samorka, SVÞ, SFS, SFF, SAF og SI) eftir því sem við á. Ef þú vilt kynna þér betur aðild að SA hvetjum við þig til að bóka upplýsingafund með okkur hér.

Hvar finn ég ráðningarsamninga?

Undir Eyðublöð hér á vefnum geta félagsmenn nálgast fjölbreytt form af ráðningarsamningum ásamt fylgiskjölum bæði á íslensku og ensku. Félagsmenn geta einnig fengið aðstoð við gerð ráðningarsamninga hjá lögmönnum vinnumarkaðssviðs SA.

Þarf ég að semja um fjarvinnu?

Já, ef það er samkomulag um að starfsmaður sinni reglulega eða alfarið utan starfstöðvar félagsins, t.d. á heimili sínu þarf að semja um fjarvinnu. Félagsmenn SA geta nálgast nánari umfjöllun um fjarvinnu hér á vinnumarkaðsvefnum auk sniðmáts að samkomulagi um fjarvinnu á íslensku og ensku undir „Eyðublöð“.

Hvernig get ég komið upplýsingum á framfæri til ykkar?

Það er keppikefli Samtaka atvinnulífsins að skapa fyrirtækjum landsins sem best umhverfi til þess að vaxa og dafna. Við tökum því öllum ábendingum fagnandi, hvort sem það lítur að innra starfi okkar eða hagsmunamáli fyrir þitt fyrirtæki. Þér er velkomið að hafa samband í 591 0000 eða senda póst á sa@sa.is.