Menntamál - 

14. september 2016

Nýjungar í starfsmenntun

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Nýjungar í starfsmenntun

Fundaröðin Menntun og mannauður hefst þriðjudaginn 20. september í Húsi atvinnulífsins. Fjallað verður um nýjungar í starfsmenntun að þessu sinni og hvað er í gangi í málaflokknum þetta haustið. Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök iðnaðarins, Samorka og Samtök verslunar og þjónustu standa að fundaröðinni sem mun standa til vors 2017.

Kristín Njálsdóttir, framkvæmdastjóri Landsmenntar, sem er sjóður almennra starfsmanna á landsbyggðinni, fjallar um það sem er efst á baugi hjá Landsmennt. Selma Kristjánsdóttir,sérfræðingur hjá SVS, starfsmenntasjóði verslunar-og skrifstofufólks og Sólveig Snæbjörnsdóttir fagstjóri hjá SVS fjalla um hvað ber hæst hjá SVS. Þá mun Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar – fræsðuseturs iðnaðarins, fjalla um nýjungar hjá Iðunni.

Að loknum erindum verður boðið upp á spurningar og spjall.

Það eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir, en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan. Boðið verður upp á kaffi, te og með því frá kl. 8.15.

Fundirnir fara fram í salnum Kviku í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 í Reykjavík, þriðja þriðjudag í mánuði.

undefined

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins