11. Okt

Sjálfbærni, hringrás og ný verðmæti

Hero icon

dags

11. október 2022

tími

kl. 10:00 - 10:30

staður

Streymi

Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku spjallar við Sigurð H. Markússon forstöðumann nýsköpunar hjá Landsvirkjun sem fer yfir sjálfbærni, hringrás og ný verðmæti hjá Landsvirkjun.

Október er eyrnamerktur umhverfismálum hjá Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum og í ár er sjónum beint að hringrásarhagkerfinu undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind . Hvern þriðjudag og fimmtudag í október njótum við 20 mínútna áhorfs á Samtöl atvinnulífsins þar sem hver atvinnugrein ræðir áskoranir og tækifæri í hringrásarhagkerfinu. Í tengslum við Umhverfisdag atvinnulífsins er allur októbermánuður eyrnamerktur umhverfismálum og þá sér í lagi hringrásarhagkerfinu.

Hringrásarhagkerfið snýst um hvernig nýta má hráefni á sem skilvirkastan hátt og fyrirbyggja t.a.m. sóun og losun gróðurhúsalofttegunda með breyttum áherslum í vöru- og þjónustuhönnun. Rannsóknir sýna að búast má við að hringrásarhagkerfinu fylgi jákvæð áhrif á efnahagslífið og landsframleiðslu. Einnig má búast við aukinni samkeppnishæfni hagkerfisins.

Skráning á viðburð