Fimmtudaginn 5. júlí verður efnt til opins morgunfundar í Húsi atvinnulífsins um viðskipti Íslendinga við Breta eftir Brexit.
Samtök atvinnulífsins (SA), Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), Bresk-íslenska viðskiptaráðið og breska sendiráðið í Reykjavík standa að fundinum.
Frummælendur
George Eustice, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Breta.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS stýrir fundi.
Fundurinn fer fram á ensku, að loknum erindum verður boðið upp á umræður og fyrirspurnir.
Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, á 1. hæð kl. 8.30-9.30.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan.
SKRÁNING