Árlegur skattadagur Deloitte í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 19. janúar kl. 8.30-10. Þetta er í 14. sinn sem dagurinn er haldinn en þar verður margt forvitnilegt borið á borð.
DAGSKRÁ
Opnunarávarp
Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra.
Tékklisti fyrir fjármálaráðherra
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Skattabreytingar - alþjóðleg aðlögun og skattalegir hvatar
Bjarni Þór Bjarnason, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte.
Alþjóðageirinn: Blásið til sóknar
Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups.
Breytingar á ársreikningalögum – einföldun og aukið flækjustig
Signý Magnúsdóttir, endurskoðandi hjá Deloitte.
Fundarstjórn
Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs Íslands.
Vinsamlegast skráið þátttöku með tölvupósti á skraning@deloitte.is - aðgangseyrir kr. 3.900 með léttum morgunverði.