Málstofa um baráttuna gegn mútum í alþjóðlegum viðskiptum verður haldin í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands þann 29. október n.k. frá klukkan 9-11, á vegum innanríkisráðuneytisins.
Aðalgestur málstofunnar verður Drago Kos, formaður Vinnuhóps OECD, sem fylgir eftir innleiðingu alþjóðlegs sáttmála á þessu sviði, gagnvart Íslandi og fjörutíu öðrum ríkjum. Meginmarkmið sáttmálans er að aðildarríkin geri það refsivert að bera mútur á erlenda opinbera starfsmenn og fylgi því eftir með fullnægjandi hætti. Erlend mútubrot eru vandamál í alþjóðlegum viðskiptum, þau skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja, eru skaðleg góðum stjórnarháttum og grafa undan efnahagsþróun.
Fulltrúar atvinnulífs og stjórnvalda taka þátt í pallborðsumræðum ásamt Drago Kos að loknu erindi hans auk þess sem gestir geta borið fram spurningar úr sal.
Þátttaka tilkynnist til Sveins Helgasonar sveinn.helgason@irr.is en einnig er hægt að skrá sig frá klukkan 08:30 í andyri Þjóðminjasafnsins á fundardaginn.
Málstofan er öllum opinn. Nánari upplýsingar um dagskrána eru á vef innanríkisráðuneytisins.