Spennandi fræðslufundaröð Litla Íslands í nóvember og desember 2017.
Efnt verður til sex opinna funda þar sem sjónum er beint að hagsmunum lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Fundirnir fara fram í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35 á 1. hæð.
Þeir sem ekki hafa tök á að mæta á fundina geta fylgst með þeim í beinni útsendingu á nýrri heimasíðu Litla Íslands - www.litlaisland.is
Dagskrá allra fundanna má nálgast hér (PDF)
Á þriðja fundinum föstudaginn 17. nóvember kl. 9-10 mun Lárus G. Lúðvígsson, ráðgjafi KPMG, fjalla um hvað felst í umbótastarfi Lean.
Farið verður yfir nokkur dæmi um hvað getur áunnist og hvers má vænta við umbótaverkefni með aðferðum Lean. Hvort sem þú ert að rifja upp megináherslur í straumlínustjórnun eða ert að kynnast aðferðafræðinni þá er þetta rétti fyrirlesturinn til að fara á!
Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan - allir velkomnir.
SKRÁNING