Spennandi fræðslufundaröð Litla Íslands fer fram í nóvember og desember 2017.
Efnt verður til sex opinna funda þar sem sjónum er beint að hagsmunum lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Fundirnir fara fram í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Þeir sem ekki hafa tök á að mæta á fundina geta fylgst með þeim í beinni útsendingu á nýrri heimasíðu Litla Íslands.
Dagskrá allra fundanna má nálgast hér (PDF)
Á fyrsta fundinum föstudaginn 3. nóvember kl. 9-12 mun Kristín Þóra Harðardóttir lögmaður á vinnumarkaðssviði SA fjalla um helstu ákvæði kjarasamninga og það helsta sem kemur upp í starfsmannamálum.
Fjallað verður m.a. um vinnutíma, uppsagnarfrest, veikindarétt, orlof og brotthlaup úr starfi.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan.