Fyrsti morgunfundur vetrarins í fundaröð Húss atvinnulífsins um menntamál verður haldinn miðvikudaginn 27. september kl. 8.30 - 10.
Á fundinum verða kynntar niðurstöður nýrrar menntakönnunar á vegum Samtaka atvinnulífsins um umfang menntunar og fræðslu innan ólíkra fyrirtækja.
Að auki munu fundargestir fá innsýn í hvernig þessum málum er háttað hjá þremur ólíkum fyrirtækjum, sem öll fara sína leið í menntun og fræðslu síns starfsfólks.
Dagskrá
Helstu niðurstöður nýrrar menntakönnunar
Þórður Höskuldsson, framkvæmdastjóri Outcome kannana og Guðrún Eyjólfsdóttir verkefnastjóri menntamála SA
Hvernig gerum við þetta?
- Sigríður Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Eimskips.
- Kristjana Milla Snorradóttir, verkefnastjóri mannauðsmála Nordic Visitor.
- Guðrún Inga Guðlaugsdóttir, fræðslustjóri Sjóvá.
Fundarstjóri er Áslaug Hulda Jónsdóttir, forstöðumaður menntamála SVÞ.
Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, í salnum Kviku á 1. hæð.
Heitt og könnunni og létt morgunhressing frá kl. 8.15.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan.