Miðvikudaginn 13. mars efnir utanríkisráðuneytið til morgunfundar um samstarf í málefnum Evrópska efnahagssvæðisins ásamt Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins.
EES og atvinnulífið– Hvernig höfum við áhrif saman? er yfirskrift fundarins. Rætt verður hvernig atvinnulífið og launþegasamtök geta haft áhrif á mótun löggjafar á EES svæðinu og hvernig auka megi samstarf hér á landi um málefni sameiginlega markaðarins.
Á fundinum verður kynntur nýr opinn EES gagnagrunnur þar sem EES-gerðir eru aðgengilegar á einum stað og upplýsingaveita um Evrópska efnahagssvæðið sett í loftið.
Fundurinn er haldinn á Grand hótel Reykjavík frá klukkan 8.30 til 10.00.
Skráning er á vef utanríkisráðuneytisins
Opnunarávarp:
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
Erindi:
Mikilvægi EES fyrir atvinnulífið: Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA og Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs SA.
Vannýtt tækifæri og hagsmunir launafólks: Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
Kynning á opna EES gagnagrunninum og upplýsingaveitu um EES samstarfið: Kristín Halla Kristinsdóttir, sérfræðingur á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytis.
Í framhaldi fara fram pallborðsumræður:
Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga
Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins
Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands
Nikulás Hannigan, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
Fundarstjóri er María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og greiningardeildar utanríkisráðuneytisins.