Málþing um tækifæri í hönnun og framleiðslu á Íslandi verður haldið í tengslum við Hönnunarverðlaun Íslands þann 24. nóvember næstkomandi. Málþingið, sem ber yfirskriftina: „Að brúa bilið á milli hönnuða og framleiðanda“, verður haldið á Kjarvalsstöðum frá kl. 15.30-17.30, að því loknu fer fram afhending verðlaunanna.
Það er Hönnunarmiðstöð Íslands sem stendur að viðburðinum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins.
Málþingið er frítt og opið öllum, en gestir eru beðnir um að skrá sig á vef Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
„Með breyttum neysluháttum, aukinni áherslu á staðbundna framleiðslu, gagnsæi og gríðarlegri fjölgun ferðamanna eiga sér stað stakkaskipti í íslensku samfélagi. Segja má að „íbúum“ á Íslandi fjölgi um hundruði þúsunda ári hverju. Í þessum vexti felast tækifæri til þróunar vöru og þjónustu. Fjölgun ferðamanna fylgja aukin alþjóðleg samskipti og möguleikar til markaðssóknar og útflutnings.“
„Nú er lag að horfa til framtíðar, vanda til verka og efla fjölbreytni í atvinnulífi. Þar er hönnun lykilatriði til árangurs.“
Dagskrá kl. 15.30-17.30
Ávarp
Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ
Örfyrirlestrar
Jóel Pálsson, Farmers Market
Páll Kr. Pálsson, Varma
Guðrún Lilja, Bility
Guðmundur Ásgeirsson, Á. Guðmundsson
Hafsteinn Júlíusson, HAF studio
Garðar Eyjólfsson, fagstjóri vöruhönnunar hjá LHÍ
Umræður
Almar Guðmundsson, Samtök iðnaðarins
Bergþóra Guðnadóttir, Farmers Market
Fríða Ingvarsdóttir, rektor LHÍ
Guðrún Lilja, Bility
Hilmar B. Janusson, HÍ
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Stjórnandi dagsins er Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ
Umræðustjóri er Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands
Að loknu málþingi fer fram afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2015.