Upplýsingafundur um Beinu brautina 22. mars
Þriðjudaginn 22. mars næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Félag atvinnurekenda, efnahags- og viðskiptaráðuneytið og fjármálaráðuneytið fyrir upplýsingafundi um framvindu Beinu brautarinnar, samkomulags um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja innan bankakerfisins. Að auki gefst fundargestum færi á að ráðfæra sig við ýmis fyrirtæki sem veita ráðgjöf á þessu sviði. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík kl. 08:30-10:00.
Á fundinum munu taka til máls Árni Páll Árnason
efnahags- og viðskiptaráðherra, Finnur
Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og
Almar Guðmundsson
framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda auk fulltrúa þriggja
fyrirtækja sem hafa nýtt sér úrræði Beinu brautarinnar. Þá
munu fulltrúar bankanna taka þátt
í pallborðsumræðum í lok fundar.
Þátttaka á fundinum er endurgjaldslaus.
Skráning fer fram á vef Viðskiptaráðs:
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU
Tengt efni: