Efnahagsmál - 

14. október 2008

Unnið að tillögum um stjórnarhætti nýrra ríkisbanka

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Unnið að tillögum um stjórnarhætti nýrra ríkisbanka

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöll Íslands áttu frumkvæði að því að setja fram leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja fyrir röskum fimm árum síðan. Með þessum leiðbeiningum var stefnt að því að skapa meiri festu og gegnsæi í stjórn fyrirtækja og efla traust. Mörg fyrirtæki tóku upp þessar leiðbeiningar en þær verða án efa fyrirferðarmeiri í umræðu um stjórnun fyrirtækja hérlendis á komandi misserum. Ástæðan er einfaldlega sú að nú skiptir miklu að byggja upp traust á íslenskum fyrirtækjum og opna þannig smám saman fyrir erlent fjármagn til starfsemi þeirra og fjárfestinga. Nú hafa þessi sömu samtök ásamt Kauphöll Íslands hafið vinnu við gerð tillagna um stjórnarhætti hinna nýju ríkisbanka.

Formaður vinnuhóps um stjórnarhætti banka og fjármálafyrirtækja er Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs en stefnt er að víðtæku samráði við ýmsa hagsmunaaðila í þeirri vinnu sem framundan er. Meðal annarra hefur verið rætt við ASÍ, fulltrúa stjórnmálaflokka og fleiri. 

"Með skýrum starfsreglum um stjórnarhætti banka er von mín að starfsemi stjórna bankanna verði gegnsærri og reynt að koma í veg fyrir misnotkun valds," segir Þór Sigfússon, formaður SA. "Við eigum að horfast strax í augu við þá staðreynd að töluverð hætta verður á að smám saman fari pólitísk afskipti að ráða för í útlánum ríkisbanka. Það mundi hafa mjög slæm áhrif á íslenskt viðskiptalíf, auka mismunun og veikja þá einkastarfsemi í fjármálaheiminum sem enn er til staðar. Við eigum að bregðast strax við og reyna að fyrirbyggja eins og kostur er.   

Framundan er að ríkisbankar taki ákvarðanir um hvaða fyrirtæki fái að lifa og hver ekki. Það er mikil ábyrgð og fara verður varlega með þetta vald. Það yrði gífurlegt áfall fyrir íslenskt atvinnulíf ef Ísland mundi stefna að nýju inn í ástand þar sem flokksskírteinin ráða meiru en góðar viðskiptahugmyndir."

Stefnt er að því að drög að tillögum um stjórnarhætti fjármálafyrirtækja í eigu ríkisins verði kynnt á næstu vikum.

Samtök atvinnulífsins