04. október 2022

Umhverfisdagur atvinnulífsins er í dag

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Umhverfisdagur atvinnulífsins er í dag

Októbermánuður er tileinkaður hringrásarhagkerfinu

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2022 er haldinn hátíðlegur í dag 5. október í Hörpu Norðurljósum kl. 09:00-10.30 undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind .

Dagurinn er árviss viðburður og að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Hér má horfa á streymið af fundinum:

Dagskrá umhverfisdagsins 5. október lýkur með afhendingu Umhverfisverðlauna atvinnulífsins en verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verðlaun fyrir umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins. Venju samkvæmt afhendir forseti Íslands Umhverfisverðlaun atvinnulífsins.

Í tengslum við Umhverfisdag atvinnulífsins er allur októbermánuður eyrnamerktur umhverfismálum og þá sér í lagi hringrásarhagkerfinu. Hringrásarhagkerfið snýst um hvernig nýta má hráefni á sem skilvirkastan hátt og fyrirbyggja t.a.m. sóun og losun gróðurhúsalofttegunda með breyttum áherslum í vöru- og þjónustuhönnun. Rannsóknir sýna að búast má við að hringrásarhagkerfinu fylgi jákvæð áhrif á efnahagslífið og landsframleiðslu. Einnig má búast við aukinni samkeppnishæfni hagkerfisins.

Októbermánuður er eyrnamerktur umhverfismálum atvinnulífsins og þá sér í lagi hringrásarhagkerfinu þvert á atvinnugreinar. Sérstakir umræðuþættir verða sýndir í októbermánuði þriðjudaga og fimmtudaga frá 10:00 - 10:30 í Sjónvarpi atvinnulífsins og Facebook live. Mánuðinum lýkur svo 26. október með fræðslufundinum Nýju hringrásarlögin - Betri heimur byrjar heima.

Dagskrá Umhverfisdags atvinnulífsins

Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.

Setning

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Ávarp

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra

Í átt að kolefnishlutleysi

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Pallborð

  • Anna Þórdís Rafnsdóttir, verkefnastjóri sjálfbærni hjá Kviku og varaformaður IcelandSIF
  • Björk Kristjánsdóttir, forstjóri Carbon Recycling International (CRI) 

Höfum við tíma til að bíða lengur?

Berglind Ósk Ólafsdóttir , sérfræðingur í sjálfbærni hjá BYKO

Ný viðmið í sjávarútvegi

Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísi hf.

Hringrás auðlinda – magn er málið

Dagný Jónsdóttir, forstöðumaður Auðlindagarðs HS Orku.

Pallborð

  • Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins
  • Þorsteinn Kári Jónsson, forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel 
  • Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherji fiskeldi 

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2022

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaun fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Umhverfisframtak ársins.

Samtök atvinnulífsins