Fréttir - 

13. apríl 2018

Tímaflakk í Hörpu

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Tímaflakk í Hörpu

Ársfundur atvinnulífsins fer fram í Hörpu mánudaginn 16. apríl kl. 14-15.30. Þar verður boðið upp á tímaflakk með hópi stjórnenda úr íslensku atvinnulífi sem leggja upp í skemmtilegt ferðalag um atvinnusögu Íslands. Þeir munu fjalla um það sem hefur áunnist á hundrað árum, það sem hefur breyst og framtíðina.

Þátt taka Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Ásthildur Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel, Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, Orri Hauksson, forstjóri Símans, Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, Anna Svava Knútsdóttir, eigandi ísbúðarinnar Valdís og Stefán Pálsson sagnfræðingur.

Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir ávarpa fundinn ásamt dr. Eamonn Butler framkvæmdastjóra, Adam Smith-stofnunarinnar í London.

Halldór Baldursson teiknar skopmynd morgundagsins á staðnum en fundinum stýrir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.

Framfarir í hundrað ár er yfirskrift Ársfundar atvinnulífsins 2018 en á árinu fagna landsmenn því að heil öld er frá því Ísland varð frjálst og fullvalda ríki þann 1. desember 1918. Á hundrað árum hefur öflugt íslenskt atvinnulíf lagt grunn að góðum lífskjörum hér á landi. Fundurinn er hluti af fjölbreyttri 100 ára dagskrá afmælisárs fullveldisins sem fer fram út um land allt.

Hægt er að skrá þátttöku hér að neðan en lausum sætum í Hörpu fer nú ört fækkandi þar sem mikill áhugi er á fundinum.

ÁRSFUNDUR ATVINNULÍFSINS - SKRÁNING

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins