Sveigjanleg starfslok – fundaröð lýkur
Fimmtudaginn 15. nóvember efnir Verkefnisstjórn 50+ til lokafundar í fundaröð um málefni miðaldra og eldrafólks á vinnumarkaði. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík - Háteigi kl. 8:30-10:00. Er eftirsóknarvert fyrir einstaklinga að vera í starfi fram eftir ævi? Af hverju er langtímaatvinnuleysi meira meðal eldra fólks en þess yngra? Hvernig hafa breytingar í lífshlaupi fólks áhrif á atvinnuþátttöku þess og þarfir á vinnumarkaði? Er sveigjanleiki ákjósanlegur eða getur hann verið íþyngjandi? Leitað verður svara við þessum spurningum. Morgunverður hefst kl. 08:00.
Dagskrá fundarins:
- Sveinn Aðalsteinsson
framkvæmdastjóri Starfsafls fjallar um Evrópuverkefni sem Starfsafl tekur þátt í, sem miðar að því að styrkja stöðu eldra fólks á vinnumarkaði.
- Séra Bernharður Guðmundsson
fulltrúi Öldrunarráðs Íslands í norrænni nefnd - Ældre i arbejdslivet - fjallar um breytilegar þarfir og aðstæður fólks á vinnumarkaði.
- Halldóra Friðjónsdóttir
formaður BHM og nefndarmaður í Verkefnisstjórn 50+ fjallar um erlend verkefni sem unnin hafa verið með þennan aldurshóp í fyrirtækjum.
Fundarstjóri: Gunnar Kristjánsson formaður Verkefnisstjórnar 50+
Nánari upplýsingar um starf verkefnisstjórnarinnar og fundaröðina er að finna á vef Vinnumálastofnunar: www.vinnumalastofnun.is