Skattadagur Deloitte þriðjudaginn 11. janúar - skráning í fullum gangi
Skattadagur Deloitte, sem haldinn er í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Viðskiptablað Morgunblaðsins, verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 11. janúar 2011. Fundurinn stendur frá klukkan 8.15 til 10.15. Skráning stendur nú yfir og stefnir í fjölmennan fund.
Dagskrá skattadagsins er eftirfarandi:
- Setning
- Steingrímur J.Sigfússon, fjármálaráðherra
- Skattar og skynsamleg viðbrögð
- Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
- Höft á fjárfestingu
- Hólmfríður Kristjánsdóttir, lögfræðingur á skatta- og lögfræðisviði Deloitte
- Efnahagskreppa og skattheimta
- Ragnar Árnason, prófessor
- Skattabreytingar - Lausnir eða vandamál?
- Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte
Fundarstjóri er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Þátttökugjald er kr. 3.500, léttur morgunverður innifalinn.
Skráning fer fram á netfanginu skraning@deloitte.is og í síma 580-3000.