Vinnumarkaður - 

08. mars 2012

Samtök atvinnulífsins á atvinnumessu í dag

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Samtök atvinnulífsins á atvinnumessu í dag

Samtök atvinnulífsins taka þátt í atvinnumessunni sem nú stendur yfir í Laugardalshöll. Um er að ræða sameiginlegt framtak atvinnulífsins, stéttarfélaga og stjórnvalda en messan er hluti af átaksverkefninu Vinnandi vegur sem hóf göngu sína 21. febrúar. Markmið átaksins er að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. Sérstök áhersla er á að skapa langtímaatvinnulausum vinnu og stendur fyrirtækjum til boða markverður fjárhagslegur stuðningur í því samhengi. Stefnt er að því að bjóða allt að 1.000 ný störf á messunni.

Umræður á atvinnumessu í dag

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, tók m.a. þátt í umræðum um stöðu atvinnumála á messunni í morgun ásamt Gylfa Arnbjörnssyni, forseta ASÍ, Guðlaugu Kristjánsdóttur formanni BHM og Steingrími J. Sigfússyni, efnhags- og viðskiptaráðherra. Vilhjálmur lagði í máli sínu áherslu á að fjárfestingar verði auknar í fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum svo hægt sé að skapa ný störf og bæta lífskjör á Íslandi.

Fjölmargir hafa lagt leið sína á bás Samtaka atvinnulífsins í dag en SA sætta sig ekki við þá kyrrstöðu sem hefur verið ríkjandi í efnahagsmálum þjóðarinnar og telja löngu tímabært að sækja fram.

Á vef verkefnisins er ítarlega fjallað um hvernig ráðning starfsfólks gengur fyrir sig og hvaða skilyrði fyrirtæki þurfa að uppfylla til að taka þátt. Við nýráðningar verður boðið upp á mismunandi leiðir til ráðninga sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum.

Samtök atvinnulífsins