Samkeppnishæfni - 

31. október 2002

Samkeppnisstofnun ESB fær á baukinn

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Samkeppnisstofnun ESB fær á baukinn

Evrópudómstóllinn (undirrétturinn) hefur nýlega veitt framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, vegna samkeppnisstofnunar ESB, harðar ákúrur vegna nokkurra ákvarðana stofnunarinnar um bann við samruna fyrirtækja. Dómstóllinn átelur harðlega bæði mælistikur og starfshætti samkeppnisstofnunarinnar. Samkeppnisstofnun ESB er í raun sérstakur verkefnishópur sem starfar á vegum framkvæmdastjórnar ESB undir forystu Mario Monti framkvæmdastjóra.

Ákvörðunum ítrekað snúið við af dómstólum
Í fyrsta lagi er um að ræða bann sem samkeppnisstofnun ESB hafði lagt við samruna tveggja ferðaskrifstofa í Bretlandi, í öðru lagi við samruna tveggja franskra raftækjaframleiðenda og loks í þriðja lagi við samruna tveggja umbúðaframleiðenda. Í öllum þessum málum beið samkeppnisstofnunin ósigur fyrir rétti. Auk þessa eru aðrar ákvarðanir stofnunarinnar enn í áfrýjun, og er þar mál General Electric og Honeywell frægast.

Lofar breyttum vinnubrögðum
Dómstóllinn fer hörðum orðum um mælistikur og markaðsgreiningu samkeppnisstofnunar ESB. Fram kemur að ýmislegt er óljóst og mótsagnakennt í álitsgerð stofnunarinnar, markaðsstaða fyrirtækjanna ofmetin og aðilum meinað um áskilinn andmælarétt. Þá eru vinnubrögð samkeppnisstofnunar ESB ekki síður harðlega gagnrýnd. Mario Monti, sem fer með þessi mál á vegum framkvæmdastjórnar ESB, hefur nýlega viðurkennt mistökin og lofað breyttum vinnubrögðum samkeppnisstofnunarinnar, að því er fram kemur í umfjöllun breska tímaritsins The Economist á dögunum.

Viðmiðunarmörk ESB um samruna eru að heildarvelta beggja eða allra viðkomandi fyrirtækja á heimsvísu nemi meira en fimm milljörðum evra samtals (um 435 milljörðum ísl. kr.) og að velta hvors eða hvers þátttökufyrirtækis um sig innan ESB nemi meira en 250 milljónum evra (um 21,8 milljarðar ísl. kr.). Auk þessa eru nánari reglur, einkum varðandi fyrirtæki sem starfa í þremur eða fleiri aðildarríkjum ESB.

Samtök atvinnulífsins