1 MIN
SA ræða atvinnumálin í Vestmannaeyjum
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um atvinnumálin í Vestmannaeyjum föstudaginn 4. febrúar kl. 12-14. Fundurinn fer fram í Akóges-húsinu Hilmisgötu 15. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu og yfirstandandi kjaraviðræður auk þess að svara fyrirspurnum. Boðið verður upp á léttan hádegisverð. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.

Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Á FUND SA
Samtök atvinnulífsins telja vænlegustu leiðina út úr kreppunni vera atvinnuleiðina. Í henni felst áhersla á atvinnusköpun, fjárfestingu í atvinnulífinu og aukinn útflutning á vöru og þjónustu.
Sjá nánar á vinnumarkadurinn.is