Menntamál - 

13. desember 2002

Óþægindi vegna starfsdaga í skólum

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Óþægindi vegna starfsdaga í skólum

Í umfjöllun Morgunblaðsins um starfsdaga í skólum segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs Samtaka atvinnulífsins, fjölda erinda berast SA frá fyrirtækjum þar sem lýst er óþægindum vegna starfsdaga. "Við drögum mikilvægi undirbúnings skólastarfs ekki í efa en við spyrjum hvort ekki sé hægt að skipuleggja þetta með skilvirkari hætti fyrir börnin, foreldra, vinnustaði þeirra og þar með þjóðfélagið í heild," segir Gústaf.

Nauðsynlegt að auka samræmi milli leikskóla og grunnskóla
Gústaf segir að það fylgi breyttu þjóðfélagi þar sem báðir foreldrar eru yfirleitt á vinnumarkaði, að skólarnir og leikskólarnir séu í þjónustuhlutverki ásamt því hlutverki að mennta börnin. Gústaf segir SA ekki hafa svör á reiðum höndum við þeirri spurningu hvernig sé hægt að skipuleggja starfsdaga með skilvirkari hætti. Hann segir þó nauðsynlegt að auka samræmi á milli leikskólanna og grunnskólanna. Aðrar hugmyndir SA eru á þann hátt að skipta t.d. kennurum í hópa sem hafa sérstaka starfsdaga og leysa hver annan af við að sinna nemendum sem yrðu þá ekki í hefðbundnu skólastarfi. Slíka starfsdaga mætti þá tengja t.d. skólaferðalögum eða fræðslu eða skemmtun fyrir nemendur frá utanaðkomandi aðilum. Gústaf Adolf nefnir starfsdaga á laugardögum sem aðra mögulega lausn.

SA tilbúin til samstarfs
Varðandi gagnrýni sem komið hefur fram þess efnis vinnumarkaðurinn komi ekki til móts við vetrarfrí í grunnskólum segir Gústaf það koma til greina af hálfu SA að skoða hvort ráð væri að hér þróaðist hefð fyrir tilteknum vetrarfrídögum með almennri orlofstöku á vinnumarkaðnum. Hann telur að frumkvæðið að því myndi allt eins geta komið frá hinu opinbera, í samráði við atvinnulífið, en að Samtök atvinnulífsins séu tilbúin til samstarfs um að koma orlofsmálum hér á landi í fastari skorður.

Samtök atvinnulífsins