Vinnumarkaður - 

04. febrúar 2011

Opinn fundur um atvinnuleiðina miðvikudaginn 9.febrúar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Opinn fundur um atvinnuleiðina miðvikudaginn 9.febrúar

Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um ATVINNULEIÐINA í Reykjavík miðvikudaginn 9. febrúar kl. 8:30-10:00. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu og yfirstandandi kjaraviðræður auk þess að svara fyrirspurnum.

Þá munu stjórnendur fjölbreyttra fyrirtækja fjalla um mikilvægi þess að ATVINNULEIÐIN verði farin út úr kreppunni í stað þess að VERÐBÓLGULEIÐIN verði farin með viðvarandi stöðnun í þjóðfélaginu og miklu atvinnuleysi næstu árin.

Meðal þeirra sem taka þátt eru Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair,

Kristín Guðmundsdóttir, forstjóri Skipta, Bolli Árnason, framkvæmdastjóri GT Tækni og Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík.

Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8:00. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.

Fundarstjóri er Grímur Sæmundsen, varaformaður SA.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Á FUND SA

Samtök atvinnulífsins telja vænlegustu leiðina út úr kreppunni vera atvinnuleiðina. Í henni felst áhersla á atvinnusköpun, fjárfestingu í atvinnulífinu og aukinn útflutning á vöru og þjónustu.

Atvinnuleiðin  

Sjá nánar á vinnumarkadurinn.is

Samtök atvinnulífsins