Vinnumarkaður - 

04. mars 2015

Öllum tryggð atvinnutengd starfsendurhæfing

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Öllum tryggð atvinnutengd starfsendurhæfing

Samkomulag hefur náðst milli stjórnvalda og heildarsamtaka vinnumarkaðarins um hvernig framlög úr ríkissjóði til starfsendurhæfingarsjóða skuli háttað. Þetta samkomulag mun því binda enda á þá óvissu sem hópar sem standa utan vinnumarkaðar hafa þurft að sæta um þjónustu hjá VIRK-starfsendurhæfingarsjóði. Samkomulagið tryggir að öllum sem á þurfa að halda er nú tryggð atvinnutengd starfsendurhæfing til að verða virkir á vinnumarkaði. Félags- og húsnæðismálaráðherra mun fá fulltrúa í stjórn VIRK.

Hannes G. Sigurðsson, formaður stjórnar VIRK, skrifaði undir samkomulagið í dag ásamt Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra og Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra sem fögnuðu þessum mikilvæga áfanga.

Hannes segir það mjög ánægjulegt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisstjórnin taki höndum saman um að tryggja öllum starfsendurhæfingu því það sé ávísun á betri vinnumarkað. Fólk sem hafi lokið starfsendurhæfingu sé dýrmætt fyrir atvinnulífið því kraftar þess geti nýst vel. Óvænt áföll vegna veikinda eða slysa setji oft strik í reikninginn en VIRK hjálpi fólki að bæta líf sitt, nýta styrkleika sína og komast út á vinnumarkaðinn á ný.

Tengt efni:

Samkomulagið - undirritað 4.3. 2015

Vefur VIRK

Samtök atvinnulífsins