Myndir af verðmætasköpun fyrirtækja streyma til SA

Á hverjum virkum degi eru sköpuð verðmæti á Íslandi fyrir um sex
milljarða króna. Fyrirtæki í Samtökum atvinnulífsins gegna
mikilvægu hlutverki í þeirri sköpun en innan raða SA eru um 2.000
fyrirtæki þar sem starfar um helmingur launamanna á Íslandi. Í
tilefni aðalfundar SA 2010 óskuðu SA eftir myndum frá
aðildarfyrirtækjum samtakanna til að sýna úr hverju stoðir íslensks
atvinnulífs eru gerðar. Fjöldi mynda hefur borist skrifstofu SA en
enn er hægt að skila inn myndum. Þær verða til sýnis á aðalfundi SA
sem fram fer 21. apríl - á síðasta degi vetrar. Yfirskrift
fundarins er ÍSLAND AF STAÐ.
Nánari upplýsingar veitir Hörður Vilberg í síma 591-0005
en myndir má senda á netfangið hordur@sa.is
ásamt stuttri lýsingu.
Sjá nánar: