Menntadagur atvinnulífsins 3. mars 2014
Samtök atvinnulífsins ásamt sjö aðildarsamtökum SA efna til Menntadags atvinnulífsins mánudaginn 3. mars 2014 á Hilton Reykjavík Nordica kl. 13-16.30. Menntun og fræðsla sem nýtist öllu atvinnulífinu verður þar í kastljósinu en þetta er í fyrsta sinn sem fulltrúar ólíkra atvinnugreina halda sameiginlegan menntadag.
Efling menntunar á öllum skólastigum og framhaldsfræðslu er brýnt hagsmunamál fyrirtækja og eykur samkeppnishæfni þeirra. Á menntadeginum munu forsvarsmenn fjölbreyttra fyrirtækja fjalla um mikilvægi menntunar starfsfólks og nauðsynlegar breytingar á menntakerfinu. Greint verður frá niðurstöðum nýrrar könnun um viðhorf framhaldsskólanema á Íslandi til bóknáms og verknáms.
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér (PDF)
Sérstakur gestur Menntadags atvinnulífsins er Dr.
Andreas Schleicher, aðstoðarframkvæmdastjóri menntamála hjá
Efnahags- og framfarastofnuninni OECD. Mikill fengur er að komu
hans til landsins en Schleicher er sérstakur ráðgjafi Angel Gurría,
framkvæmdastjóra OECD,á sviði stefnumótunar í menntamálum.
Dr. Andreas Schleicher hefur góða yfirsýn yfir verkefni OECD um samspil hæfni, menntunar og samkeppnishæfni þjóða. Þar má t.d. nefna PISA-könnunina sem metur hæfni 15 ára grunnskólanemenda út um allan heim - hversu vel nemendur við lok grunnskóla hafa tileinkað sér þá þekkingu og hæfni sem þeir þurfa á að halda í nútíma samfélagi. Einnig PIAAC sem kannar hæfni starfsfólks á vinnumarkaði (OECD Survey of Adult Skills). Hér má sjá stutt myndskeið frá OECD um niðurstöður þeirrar könnunar.
Á menntadeginum verða Menntaverðlaun atvinnulífsins veitt í fyrsta sinn til fyrirtækja sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Fjögur fyrirtæki eru tilnefnd sem Menntafyrirtæki ársins og fjögur fyrirtæki eru tilnefnd sem Menntasproti ársins. Greint verður frá tilnefningum í vikunni fyrir menntadaginn og fyrirtækin rækilega kynnt. Ragnheiður Elín Árnadóttir, mun tilkynna um sigurvegara á menntadeginum og afhenda verðlaun í hvorum flokki fyrir sig.
Ráðstefnustjóri er Eggert B. Guðmundsson, forstjóri N1.
Allir eru velkomnir og er ekkert þátttökugjald en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan.
