Samkeppnishæfni - 

01. október 2013

Kynning á samkeppnisreglum fyrir stjórnendur fyrirtækja

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Kynning á samkeppnisreglum fyrir stjórnendur fyrirtækja

Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að bjóða stjórnendum fyrirtækja upp á kynningu á meginákvæðum samkeppnislaga og túlkun þeirra. Kynningin fer fram hjá Samkeppniseftirlitinu á smærri fundum með 15-20 stjórnendum í hvert skipti. Samtök atvinnulífsins hvetja félagsmenn sína til að nýta þetta tækifæri en kynningarnar fara fram í nóvember og desember.

Þeim sem vilja taka þátt er bent á að senda tölvupóst í vikunni á Hörð Vilberg hjá SA á hordur@sa.is. Samkeppnieftirlitið skipuleggur fundina í kjölfarið.

Hver kynningarfundur tekur um þrjár klukkustundir  en þar verður m.a. fjallað um eftirfarandi atriði:

  • Kjarna banns við ólögmætu samráði.

    Farið verður yfir einkenni ólögmæts samráðs og tekin dæmi.

  • Kjarna banns við misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

    Farið verður yfir kjarnasjónarmið sem ráða skilgreiningu markaða, vísireglur um mat á því hvort fyrirtæki teljist markaðsráðandi og skyldur sem slík fyrirtæki þurfa að axla. Tekin verða dæmi sem þessu tengjast.

Samtök atvinnulífsins