1 MIN
Kosning um kjarasamninga stendur yfir
Nú stendur yfir rafræn kosning um þá skammtímakjarasamninga sem undirritaðir voru 3. og 11. desember síðastliðinn. Skráðir forsvarsmenn fyrirtækja í aðild hjá SA hafa einir rétt til að kjósa um samningana og geta smellt hér og farið í gegnum auðkenningarferli. Kosningu lýkur mánudaginn 19. desember kl. 13:00.
Könnuður ehf. annast framkvæmd kosningarinnar.
Nánari upplýsingar um samningana má finna hér á vinnumarkaðsvef SA