Hvert stefnir Evrópa? Skráningu á fund SA og SI lýkur í dag
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins efna til opins morgunverðarfundar föstudaginn 16. september á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30-10.00. Efni fundarins er staða atvinnulífsins í Evrópu og hagvaxtarhorfur ásamt mögulegum áhrifum á íslenskt efnahagslíf. Aðalræðumaður verður Philippe de Buck, framkvæmdastjóri BUSINESSEUROPE (samtaka atvinnulífsins í Evrópu) en yfirskrift erindis hans er European Business Outlook. Mikill áhugi er á fundinum og er vissara fyrir áhugasama að skrá sig strax til að tryggja sér sæti en fundurinn fer fram í aðalsal Nordica.
BUSINESSEUROPE hefur á undanförnum misserum verið öflugur talsmaður aukinna fjárfestinga í atvinnulífinu, meiri hagvaxtar, að ný störf verði sköpuð og samkeppnishæfni evrópskra fyrirtækja verði aukin.
Þátttakendur í umræðum að loknu erindi de Buck eru Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris og stjórnarformaður Marels og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður.
SMELLTU TIL AÐ SKRÁ ÞIG
Við hlökkum til að sjá þig. Fundurinn fer fram á ensku.

BUSINESSEUROPE eru stærstu samtök sinnar tegundar í Evrópu
og málsvari yfir 20 milljón fyrirtækja sem flest eru lítil eða
meðalstór.
Aðild að BUSINESSEUROPE eiga 41 atvinnurekendasamtök frá 35
löndum, þar á meðal Samtök atvinnulífsins og Samtök
iðnaðarins.