13. maí 2022

Hringferð SA 2022 - Góðir fundir á Ísafirði og Akureyri

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hringferð SA 2022 - Góðir fundir á Ísafirði og Akureyri

Hringferð Samtaka atvinnulífsins hélt áfram í vikunni en þá heimsóttu starfsmenn Samtakanna bæði Ísafjörð og Akureyri.

Góð mæting var á báðum stöðum og greinilegt að félagsmenn eru áhugasamir um komandi kjaraviðræður.

Á fundunum fara starfsmenn SA yfir aðstæður í efnahagsmálum, fara yfir vinnu fulltrúaráðs í aðdraganda kjarasamninga og bjóða upp á fræðslu um kjara- og starfsmannamál. Fundirnir halda áfram í komandi viku en þá heimsækja Samtökin Vestmannaeyjar og Selfoss . Sem fyrr hvetjum við félagsmenn til að koma og hitta starfsfólk SA og eiga góðan fund um komandi misseri.

Hér fyrir neðan má finna myndir frá fundunum:

Samtök atvinnulífsins